Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Amos 7

1 Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Það voru komnar engisprettulirfur, þá er háin tók til að spretta eftir konungsslátt.2 En er þær höfðu gjöretið grasið af jörðinni, sagði ég: "Drottinn Guð, æ fyrirgef! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!"3 Þá iðraði Drottin þessa. "Það skal ekki verða!" sagði Drottinn.4 Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Drottinn Guð kom til þess að hegna með eldi, og hann svalg hið mikla djúp og eyddi landið.5 Þá sagði ég: "Æ, Drottinn Guð, lát af! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!"6 Þá iðraði Drottin þessa. "Þetta skal ekki heldur verða!" sagði Drottinn.7 Hann lét þessa sýn bera fyrir mig: Sjá, Drottinn stóð uppi á lóðréttum múrvegg og hélt á lóði.8 Og Drottinn sagði við mig: "Hvað sér þú, Amos?" Ég svaraði: "Lóð." Þá sagði Drottinn: "Sjá, ég mun lóð nota mitt á meðal lýðs míns Ísraels, ég vil eigi lengur umbera hann.9 Hæðir Ísaks skulu í eyði lagðar verða og helgidómar Ísraels eyddir verða, og ég vil rísa gegn Jeróbóams ætt með reiddu sverði."

10 Amasía prestur í Betel sendi boð til Jeróbóams Ísraelskonungs og lét segja: "Amos kveikir uppreisn gegn þér mitt í Ísraelsríki. Landið fær eigi þolað öll orð hans.11 Því að svo hefir Amos sagt: ,Jeróbóam mun fyrir sverði falla og Ísrael mun herleiddur verða burt úr landi sínu.'"12 Síðan sagði Amasía við Amos: "Haf þig á burt, vitranamaður, flý til Júdalands! Afla þér þar viðurværis og spá þú þar!13 En í Betel mátt þú eigi framar koma fram sem spámaður, því að hér er konunglegur helgidómur og ríkismusteri."14 Þá svaraði Amos og sagði við Amasía: "Ég er enginn spámaður, og ég er ekki af spámannaflokki, heldur er ég hjarðmaður og rækta mórber.15 En Drottinn tók mig frá hjarðmennskunni og sagði við mig: ,Far þú og spá þú hjá lýð mínum Ísrael.'16 Og heyr því orð Drottins: Þú segir: ,Þú mátt eigi spá gegn Ísrael né láta orð þín streyma yfir Ísaks niðja.'17 Fyrir því segir Drottinn svo: ,Konan þín skal verða skækja hér í borginni, og synir þínir og dætur skulu fyrir sverði falla. Jörð þinni skal sundur skipt verða með mælivað, og þú sjálfur skalt deyja í óhreinu landi. Og Ísraelsmenn skulu fara herleiddir af landi sínu.'"

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile