Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
StudyLight.org has pledged to help build churches in Uganda. Help us with that pledge and support pastors in the heart of Africa.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Jobsbók 25

1 Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:2 Hans er drottinvald og ótti, hans sem lætur frið ríkja í hæðum sínum.3 Verður tölu komið á hersveitir hans, og yfir hverjum rennur ekki upp ljós hans?4 Hvernig ætti maðurinn þá að vera réttlátur hjá Guði, og hvernig ætti sá að vera hreinn, sem af konu er fæddur?5 Sjá, jafnvel tunglið, það er ekki bjart, og stjörnurnar eru ekki hreinar í augum hans,6 hvað þá maðurinn, maðkurinn, og mannssonurinn, ormurinn!

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile