Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
Tired of seeing ads while studying? Now you can enjoy an "Ads Free" version of the site for as little as 10¢ a day and support a great cause!
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Jósúabók 12

1 Þessir eru konungar landsins, þeir er Ísraelsmenn unnu sigur á og tóku lönd af hinumegin Jórdanar, austanmegin, frá Arnoná til Hermonfjalls og allt sléttlendið austanmegin:2 Síhon, Amorítakonungur, sem bjó í Hesbon og réð landi frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og dalnum miðjum og hálfu Gíleað að Jabboká, sem er á landamærum Ammóníta,3 og sléttlendinu að Genesaretvatni að austanverðu og að vatninu á sléttlendinu, Saltasjó, að austanverðu, suður undir Bet Jesímót, og til suðurs að Pisgahlíðum.4 Sömuleiðis land Ógs, konungs í Basan, sem var einn þeirra Refaíta, er eftir voru, og bjó í Astarót og Edreí5 og réð yfir Hermonfjöllum, Salka og öllu Basan, að landamærum Gesúra og Maakatíta, og yfir hálfu Gíleað, að landamærum Síhons, konungs í Hesbon.6 Móse, þjónn Drottins, og Ísraelsmenn höfðu unnið sigur á þeim, og Móse, þjónn Drottins, hafði gefið Rúbenítum, Gaðítum og hálfri ættkvísl Manasse landið til eignar.

7 Þessir eru konungar landsins, þeir er Jósúa og Ísraelsmenn unnu sigur á fyrir vestan Jórdan, frá Baal Gað í Líbanonsdal til Skallabergs, sem liggur upp til Seír, - en landið gaf Jósúa ættkvíslum Ísraels til eignar eftir skiptingu þeirra -,8 í fjalllendinu, á láglendinu, á sléttlendinu, í fjallahlíðunum, í eyðimörkinni og í suðurlandinu, - land Hetíta, Amoríta, Kanaaníta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta:9 Konungurinn í Jeríkó einn, konungurinn í Aí, sem er hjá Betel, einn,10 konungurinn í Jerúsalem einn, konungurinn í Hebron einn,11 konungurinn í Jarmút einn, konungurinn í Lakís einn,12 konungurinn í Eglon einn, konungurinn í Geser einn,13 konungurinn í Debír einn, konungurinn í Geder einn,14 konungurinn í Horma einn, konungurinn í Arad einn,15 konungurinn í Líbna einn, konungurinn í Adúllam einn,16 konungurinn í Makeda einn, konungurinn í Betel einn,17 konungurinn í Tappúa einn, konungurinn í Hefer einn,18 konungurinn í Afek einn, konungurinn í Saron einn,19 konungurinn í Madón einn, konungurinn í Hasór einn,20 konungurinn í Simrón Meróm einn, konungurinn í Aksaf einn,21 konungurinn í Taanak einn, konungurinn í Megíddó einn,22 konungurinn í Kedes einn, konungurinn í Jokneam hjá Karmel einn,23 konungurinn í Dór í Dórshæðum einn, konungur heiðingjanna í Gilgal einn,24 konungurinn í Tirsa einn, - alls þrjátíu og einn konungur.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile