Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
Tired of seeing ads while studying? Now you can enjoy an "Ads Free" version of the site for as little as 10¢ a day and support a great cause!
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Jósúabók 16

1 Síðan kom upp hlutur Jósefs sona, og hlutu þeir land austan frá Jórdan, gegnt Jeríkó, til Jeríkóvatna, eyðimörkina, sem liggur frá Jeríkó upp á Betelfjöll.2 Frá Betel lágu landamerkin til Lúz, þaðan yfir til lands Arkíta, til Atarót,3 þaðan ofan á við og í vestur, til lands Jafletíta, að landamærum Bet Hóron neðri og allt til Geser, og þaðan alla leið til sjávar.4 Synir Jósefs, Manasse og Efraím, fengu óðal sitt.

5 Þetta var land Efraíms sona, eftir ættum þeirra: Takmörk ættaróðals þeirra voru að austan Aterót Addar til Bet Hóron efri,6 og takmörkin lágu út að hafi. Að norðan var Mikmetat, þaðan beygðu landamerkin af austur á við til Taanat Síló og þar fram hjá austur fyrir Janóha.7 En frá Janóha lágu þau ofan á við til Atarót og Naarat, lentu hjá Jeríkó og lágu þaðan að Jórdan.8 Frá Tappúa lágu landamerkin í vestur til Kana-lækjar og þaðan alla leið til sjávar. Þetta er óðal kynkvíslar Efraíms sona, eftir ættum þeirra,9 auk þess borgirnar, sem skildar voru frá handa Efraíms sonum í ættaróðali Manasse sona - allar borgirnar og þorpin, er að lágu.10 En ekki ráku þeir burt Kanaanítana, sem bjuggu í Geser. Fyrir því búa Kanaanítar meðal Efraíms fram á þennan dag og urðu vinnuskyldir þrælar.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile