Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Míka 5

1 (4:14) Gjör nú skinnsprettur á hold þitt. Hervirki hefir hann gjört í móti oss. Með sprotanum munu þeir ljósta dómara Ísraels á kinnina.2 (5:1) Og þú, Betlehem Efrata, þótt þú sért einna minnst af héraðsborgunum í Júda, þá skal þó frá þér koma sá, er vera skal drottnari í Ísrael, og ætterni hans vera frá umliðinni öld, frá fortíðar dögum.3 (5:2) Fyrir því mun Guð yfirgefa þá til þess tíma, er sú hefir fætt, er fæða skal, en þá munu leifar ættbræðra hans hverfa aftur til Ísraelsmanna.4 (5:3) Þá mun hann standa og halda þeim til haga í krafti Drottins, í hinu tignarlega nafni Drottins Guðs síns, og þeir skulu óhultir búa, því að þá skal hann mikill vera til endimarka jarðar.5 (5:4) Og þessi mun friðurinn vera: Brjótist Assýringar inn í land vort og stígi þeir fæti á ættjörð vora, þá munum vér senda í móti þeim sjö hirða og átta þjóðhöfðingja,6 (5:5) og þeir munu herja land Assýringa með sverði og land Nimrods með brugðnum brandi. Og þannig mun hann frelsa oss frá Assýringum, er þeir brjótast inn í land vort og stíga fæti á fold vora.

7 (5:6) Leifar Jakobs meðal heiðingjanna, mitt á meðal margra þjóða, munu vera sem dögg frá Drottni, sem regndropar á grasi, þeir er bíða ekki eftir neinum og vænta ekki neins af mannanna börnum.8 (5:7) Og leifar Jakobs meðal heiðingjanna, mitt á meðal margra þjóða, munu vera sem ljón meðal skógardýra, sem ljónshvolpur í sauðahjörð, sá er niður treður þar sem hann veður yfir og sundur rífur, án þess að nokkur fái bjargað.9 (5:8) Armleggur þinn mun hrósa sigri yfir mótstöðumönnum þínum og allir óvinir þínir munu afmáðir verða.10 (5:9) Á þeim degi - segir Drottinn - vil ég eyða öllum þeim víghestum, sem þú átt í landinu, og gjöra að engu hervagna þína,11 (5:10) ég vil eyða borgum lands þíns og rífa niður öll virki þín,12 (5:11) ég vil eyða öllum töfrum hjá þér, og spásagnamenn skulu eigi framar hjá þér vera.13 (5:12) Ég vil eyða skurðmyndum þínum og merkissteinum, þeim er hjá þér eru, og þú skalt ekki framar falla fram fyrir verkum handa þinna.14 (5:13) Ég vil brjóta niður asérur þínar og eyðileggja guðalíkneski þín,15 (5:14) og ég vil með reiði og gremi hefnast á þjóðunum, er eigi hafa hlýðnast.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile