Lectionary Calendar
Wednesday, September 17th, 2025
the Week of Proper 19 / Ordinary 24
Attention!
Take your personal ministry to the Next Level by helping StudyLight build churches and supporting pastors in Uganda.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 108

1 Ljóð. Davíðssálmur. (108:2) Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, ég vil syngja og leika, vakna þú, sála mín!2 (108:3) Vakna þú, harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann.3 (108:4) Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna,4 (108:5) því að miskunn þín er himnum hærri, og trúfesti þín nær til skýjanna.5 (108:6) Sýn þig himnum hærri, ó Guð, og dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina,

6 (108:7) til þess að ástvinir þínir megi frelsast. Hjálpa þú með hægri hendi þinni og bænheyr mig.7 (108:8) Guð hefir sagt í helgidómi sínum: "Ég vil fagna, ég vil skipta Síkem, mæla út Súkkót-dal.8 (108:9) Ég á Gíleað, ég á Manasse, og Efraím er hlíf höfði mínu, Júda veldissproti minn.9 (108:10) Móab er mundlaug mín, í Edóm fleygi ég skónum mínum, yfir Filisteu fagna ég."10 (108:11) Hver vill fara með mig í örugga borg, hver vill flytja mig til Edóm?11 (108:12) Þú hefir útskúfað oss, ó Guð, og þú, Guð, fer eigi út með hersveitum vorum.12 (108:13) Veit oss lið gegn fjandmönnunum, því að mannahjálp er ónýt.13 (108:14) Með Guðs hjálp munum vér hreystiverk vinna, og hann mun troða óvini vora fótum.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile