Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
StudyLight.org has pledged to help build churches in Uganda. Help us with that pledge and support pastors in the heart of Africa.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 112

1 Halelúja. Sæll er sá maður, sem óttast Drottin og hefir mikla unun af boðum hans.2 Niðjar hans verða voldugir á jörðunni, ætt réttvísra mun blessun hljóta.3 Nægtir og auðæfi eru í húsi hans, og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.4 Hann upprennur réttvísum sem ljós í myrkrinu, mildur og meðaumkunarsamur og réttlátur.5 Vel farnast þeim manni, sem er mildur og fús að lána, sem framkvæmir málefni sín með réttvísi,

6 því að hann mun eigi haggast að eilífu, hins réttláta mun minnst um eilífð.7 Hann óttast eigi ill tíðindi, hjarta hans er stöðugt og treystir Drottni.8 Hjarta hans er öruggt, hann óttast eigi, og loks fær hann að horfa á fjendur sína auðmýkta.9 Hann hefir miðlað mildilega, gefið fátækum, réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu, horn hans gnæfir hátt í vegsemd.10 Hinn óguðlegi sér það, og honum gremst, nístir tönnum og tortímist. Ósk óguðlegra verður að engu.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile