Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 135

1 Halelúja. Lofið nafn Drottins, lofið hann, þér þjónar Drottins,2 er standið í húsi Drottins, í forgörðum húss Guðs vors.3 Lofið Drottin, því að Drottinn er góður, leikið fyrir nafni hans, því að það er yndislegt.4 Því að Drottinn hefir útvalið sér Jakob, gert Ísrael að eign sinni.

5 Já, ég veit, að Drottinn er mikill og að Drottinn vor er öllum guðum æðri.6 Allt, sem Drottni þóknast, það gjörir hann, á himni og jörðu, í hafinu og öllum djúpunum.7 Hann lætur skýin uppstíga frá endimörkum jarðar, gjörir eldingarnar til að búa rás regninu, hleypir vindinum út úr forðabúrum hans.8 Hann laust frumburði Egyptalands, bæði menn og skepnur,9 sendi tákn og undur yfir Egyptaland, gegn Faraó og öllum þjónum hans.10 Hann laust margar þjóðir og deyddi volduga konunga:11 Síhon, Amorítakonung, og Óg, konung í Basan, og öll konungsríki í Kanaan,12 og gaf lönd þeirra að erfð, að erfð Ísrael, lýð sínum.13 Drottinn, nafn þitt varir að eilífu, minning þín, Drottinn, frá kyni til kyns,14 því að Drottinn réttir hlut þjóðar sinnar og aumkast yfir þjóna sína.

15 Skurðgoð þjóðanna eru silfur og gull, handaverk manna.16 Þau hafa munn, en tala ekki, augu, en sjá ekki,17 þau hafa eyru, en heyra ekki, og eigi er heldur neinn andardráttur í munni þeirra.18 Eins og þau eru, verða smiðir þeirra, allir þeir, er á þau treysta.19 Ísraels ætt, lofið Drottin, Arons ætt, lofið Drottin!20 Leví ætt, lofið Drottin, þér sem óttist Drottin, lofið hann!21 Lofaður sé Drottinn frá Síon, hann sem býr í Jerúsalem! Halelúja.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile