Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
StudyLight.org has pledged to help build churches in Uganda. Help us with that pledge and support pastors in the heart of Africa.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 2

1 Hví geisa heiðingjarnir og hví hyggja þjóðirnar á fánýt ráð?2 Konungar jarðarinnar ganga fram, og höfðingjarnir bera ráð sín saman gegn Drottni og hans smurða:3 "Vér skulum brjóta sundur fjötra þeirra, vér skulum varpa af oss viðjum þeirra."4 Hann sem situr á himni hlær. Drottinn gjörir gys að þeim.5 Því næst talar hann til þeirra í reiði sinni, skelfir þá í bræði sinni:6 "Ég hefi skipað konung minn á Síon, fjallið mitt helga."

7 Ég vil kunngjöra ályktun Drottins: Hann mælti við mig: "Þú ert sonur minn. Í dag gat ég þig.8 Bið þú mig, og ég mun gefa þér þjóðirnar að erfð og endimörk jarðar að óðali.9 Þú skalt mola þá með járnsprota, mölva þá sem leirsmiðs ker."

10 Verið því hyggnir, þér konungar, látið yður segjast, þér dómarar á jörðu.11 Þjónið Drottni með ótta og fagnið með lotningu.12 Hyllið soninn, að hann reiðist eigi og vegur yðar endi í vegleysu, (2:13) því að skjótt bálast upp reiði hans. Sæll er hver sá er leitar hælis hjá honum.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile