Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
Partner with StudyLight.org as God uses us to make a difference for those displaced by Russia's war on Ukraine.
Click to donate today!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 34

1 Sálmur Davíðs, þá er hann gjörði sér upp vitfirringu frammi fyrir Abímelek, svo að Abímelek rak hann í burt, og hann fór burt. (34:2) Ég vil vegsama Drottin alla tíma, ætíð sé lof hans mér í munni.2 (34:3) Sál mín hrósar sér af Drottni, hinir hógværu skulu heyra það og fagna.3 (34:4) Miklið Drottin ásamt mér, tignum í sameiningu nafn hans.4 (34:5) Ég leitaði Drottins, og hann svaraði mér, frelsaði mig frá öllu því er ég hræddist.5 (34:6) Lítið til hans og gleðjist, og andlit yðar skulu eigi blygðast.6 (34:7) Hér er volaður maður sem hrópaði, og Drottinn heyrði hann og hjálpaði honum úr öllum nauðum hans.7 (34:8) Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann, og frelsar þá.8 (34:9) Finnið og sjáið, að Drottinn er góður, sæll er sá maður er leitar hælis hjá honum.9 (34:10) Óttist Drottin, þér hans heilögu, því að þeir er óttast hann líða engan skort.10 (34:11) Ung ljón eiga við skort að búa og svelta, en þeir er leita Drottins fara einskis góðs á mis.

11 (34:12) Komið, börn, hlýðið á mig, ég vil kenna yður ótta Drottins.12 (34:13) Ef einhver óskar lífs, þráir lífdaga til þess að njóta hamingjunnar,13 (34:14) þá varðveit tungu þína frá illu og varir þínar frá svikatali,14 (34:15) forðast illt og gjörðu gott, leita friðar og legg stund á hann.15 (34:16) Augu Drottins hvíla á réttlátum, og eyru hans gefa gaum að hrópi þeirra.16 (34:17) Auglit Drottins horfir á þá er illa breyta, til þess að afmá minningu þeirra af jörðunni.17 (34:18) Ef réttlátir hrópa, þá heyrir Drottinn, úr öllum nauðum þeirra frelsar hann þá.18 (34:19) Drottinn er nálægur þeim er hafa sundurmarið hjarta, þeim er hafa sundurkraminn anda, hjálpar hann.19 (34:20) Margar eru raunir réttláts manns, en Drottinn frelsar hann úr þeim öllum.20 (34:21) Hann gætir allra beina hans, ekki eitt af þeim skal brotið.21 (34:22) Ógæfa drepur óguðlegan mann, þeir er hata hinn réttláta, skulu sekir dæmdir.22 (34:23) Drottinn frelsar líf þjóna sinna, enginn sá er leitar hælis hjá honum, mun sekur dæmdur.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile