Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 4

1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur. (4:2) Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti, rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.2 (4:3) Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]3 (4:4) Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð, að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.4 (4:5) Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]5 (4:6) Færið réttar fórnir og treystið Drottni.

6 (4:7) Margir segja: "Hver lætur oss hamingju líta?" Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.7 (4:8) Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.8 (4:9) Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile