Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 40

1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. (40:2) Ég hefi sett alla von mína á Drottin, og hann laut niður að mér og heyrði kvein mitt.2 (40:3) Hann dró mig upp úr glötunargröfinni, upp úr hinni botnlausu leðju, og veitti mér fótfestu á kletti, gjörði mig styrkan í gangi.3 (40:4) Hann lagði mér ný ljóð í munn, lofsöng um Guð vorn. Margir sjá það og óttast og treysta Drottni.4 (40:5) Sæll er sá maður, er gjörir Drottin að athvarfi sínu og snýr sér eigi til hinna dramblátu né þeirra er snúist hafa afleiðis til lygi.5 (40:6) Mörg hefir þú, Drottinn, Guð minn, gjört dásemdarverk þín og áform þín oss til handa, ekkert kemst í samjöfnuð við þig. Ef ég ætti að boða þau og kunngjöra, eru þau fleiri en tölu verði á komið.

6 (40:7) Á sláturfórnum og matfórnum hefir þú enga þóknun, - þú hefir gefið mér opin eyru - brennifórnir og syndafórnir heimtar þú eigi.7 (40:8) Þá mælti ég: "Sjá, ég kem, í bókrollunni eru mér reglur settar.8 (40:9) Að gjöra vilja þinn, Guð minn, er mér yndi, og lögmál þitt er hið innra í mér."9 (40:10) Ég hefi boðað réttlætið í miklum söfnuði, ég hefi eigi haldið vörunum aftur, það veist þú, Drottinn!10 (40:11) Ég leyndi eigi réttlæti þínu í hjarta mér, ég kunngjörði trúfesti þína og hjálpræði og dró eigi dul á náð þína og tryggð í hinum mikla söfnuði.

11 (40:12) Tak þá eigi miskunn þína frá mér, Drottinn, lát náð þína og trúfesti ætíð vernda mig.12 (40:13) Því að ótal hættur umkringja mig, misgjörðir mínar hafa náð mér, svo að ég má eigi sjá, þær eru fleiri en hárin á höfði mér, mér fellst hugur.13 (40:14) Lát þér, Drottinn, þóknast að frelsa mig, skunda, Drottinn, mér til hjálpar.14 (40:15) Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða, er sitja um líf mitt, lát þá hverfa aftur með skömm, er óska mér ógæfu.15 (40:16) Lát þá verða forviða yfir smán sinni, er hrópa háð og spé.16 (40:17) En allir þeir er leita þín skulu gleðjast og fagna yfir þér, þeir er unna hjálpræði þínu skulu sífellt segja: "Vegsamaður sé Drottinn!"17 (40:18) Ég er hrjáður og snauður, en Drottinn ber umhyggju fyrir mér. Þú ert fulltingi mitt og frelsari, tef eigi, Guð minn!

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile