Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
Partner with StudyLight.org as God uses us to make a difference for those displaced by Russia's war on Ukraine.
Click to donate today!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 51

1 Til söngstjórans. Sálmur Davíðs, (51:2) þá er Natan spámaður kom til hans, eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu. (51:3) Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar, afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.2 (51:4) Þvo mig hreinan af misgjörð minni, hreinsa mig af synd minni,3 (51:5) því að ég þekki sjálfur afbrot mín, og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.4 (51:6) Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur, er þú talar, hreinn, er þú dæmir.5 (51:7) Sjá, sekur var ég, er ég varð til, syndugur, er móðir mín fæddi mig.6 (51:8) Sjá, þú hefir þóknun á hreinskilni hið innra, og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!

7 (51:9) Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn, þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.8 (51:10) Lát mig heyra fögnuð og gleði, lát kætast beinin sem þú hefir sundurmarið.9 (51:11) Byrg auglit þitt fyrir syndum mínum og afmá allar misgjörðir mínar.10 (51:12) Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð, og veit mér nýjan, stöðugan anda.11 (51:13) Varpa mér ekki burt frá augliti þínu og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.12 (51:14) Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis og styð mig með fúsleiks anda,13 (51:15) að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína og syndarar megi hverfa aftur til þín.

14 (51:16) Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns, lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.15 (51:17) Drottinn, opna varir mínar, svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!16 (51:18) Þú hefir ekki þóknun á sláturfórnum - annars mundi ég láta þær í té - og að brennifórnum er þér ekkert yndi.17 (51:19) Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi, sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.18 (51:20) Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar, reis múra Jerúsalem!19 (51:21) Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn, þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile