Lectionary Calendar
Wednesday, May 15th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
StudyLight.org has pledged to help build churches in Uganda. Help us with that pledge and support pastors in the heart of Africa.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 54

1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Maskíl eftir Davíð, (54:2) þá er Sifítar komu og sögðu við Sál: Veistu að Davíð felur sig hjá oss? (54:3) Hjálpa mér, Guð, með nafni þínu, rétt hlut minn með mætti þínum.2 (54:4) Guð, heyr þú bæn mína, ljá eyra orðum munns míns.3 (54:5) Því að erlendir fjandmenn hefjast gegn mér og ofríkismenn sækjast eftir lífi mínu, eigi hafa þeir Guð fyrir augum. [Sela]

4 (54:6) Sjá, Guð er mér hjálpari, það er Drottinn er styður mig.5 (54:7) Hið illa mun fjandmönnum mínum í koll koma, lát þá hverfa af trúfesti þinni.6 (54:8) Þá vil ég færa þér sjálfviljafórnir, lofa nafn þitt, Drottinn, að það sé gott,7 (54:9) því að það hefir frelsað mig úr hverri neyð, og auga mitt hefir svalað sér á að horfa á óvini mína.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile