Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 6

1 Til söngstjórans. Með strengjaleik á áttstrengjað hljóðfæri. Davíðssálmur. (6:2) Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni og tyfta mig ekki í gremi þinni.2 (6:3) Líkna mér, Drottinn, því að ég örmagnast, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast.3 (6:4) Sál mín er óttaslegin, en þú, ó Drottinn - hversu lengi?4 (6:5) Snú þú aftur, Drottinn, frelsa sálu mína, hjálpa mér sakir elsku þinnar.5 (6:6) Því að enginn minnist þín í dánarheimum, hver skyldi lofa þig hjá Helju?6 (6:7) Ég er þreyttur af andvörpum mínum, ég lauga rekkju mína í tárum, læt hvílu mína flóa hverja nótt.7 (6:8) Augu mín eru döpruð af harmi, orðin sljó sakir allra óvina minna.

8 (6:9) Farið frá mér, allir illgjörðamenn, því að Drottinn hefir heyrt grátraust mína.9 (6:10) Drottinn hefir heyrt grátbeiðni mína, Drottinn tekur á móti bæn minni.10 (6:11) Allir óvinir mínir skulu verða til skammar og skelfast mjög, hraða sér sneyptir burt.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile