Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
StudyLight.org has pledged to help build churches in Uganda. Help us with that pledge and support pastors in the heart of Africa.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 61

1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Eftir Davíð. (61:2) Heyr, ó Guð, hróp mitt, gef gaum bæn minni.2 (61:3) Frá endimörkum jarðar hrópa ég til þín, meðan hjarta mitt örmagnast. Hef mig upp á bjarg það, sem mér er of hátt.3 (61:4) Leið mig, því að þú ert orðinn mér hæli, öruggt vígi gegn óvinum.4 (61:5) Lát mig gista í tjaldi þínu um eilífð, leita hælis í skjóli vængja þinna. [Sela]

5 (61:6) Því að þú, ó Guð, hefir heyrt heit mín, þú hefir uppfyllt óskir þeirra er óttast nafn þitt.6 (61:7) Þú munt lengja lífdaga konungs, láta ár hans vara frá kyni til kyns.7 (61:8) Hann skal sitja um eilífð frammi fyrir Guði, lát miskunn og trúfesti varðveita hann.8 (61:9) Þá vil ég lofsyngja nafni þínu um aldur, og efna heit mín dag frá degi.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile