Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 64

1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. (64:2) Heyr, ó Guð, raust mína, er ég kveina, varðveit líf mitt fyrir ógnum óvinarins.2 (64:3) Skýl mér fyrir bandalagi bófanna, fyrir óaldarflokki illvirkjanna,3 (64:4) er hvetja tungur sínar sem sverð, leggja örvar sínar, beiskyrðin, á streng4 (64:5) til þess að skjóta í leyni á hinn ráðvanda, skjóta á hann allt í einu, hvergi hræddir.5 (64
6 Þeir binda fastmælum með sér ill áform, tala um að leggja leynisnörur, þeir hugsa: "Hver ætli sjái það?"
6 (64:7) Þeir upphugsa ranglæti: "Vér erum tilbúnir, vel ráðin ráð!" því að hugskot hvers eins og hjarta er fullt véla.

7 (64:8) Þá lýstur Guð þá með örinni, allt í einu verða þeir sárir,8 (64:9) og tunga þeirra verður þeim að falli. Allir þeir er sjá þá, munu hrista höfuðið.9 (64:10) Þá mun hver maður óttast og kunngjöra dáðir Guðs og gefa gætur að verkum hans.10 (64:11) Hinn réttláti mun gleðjast yfir Drottni og leita hælis hjá honum, og allir hjartahreinir munu sigri hrósa.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile