Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 67

1 Til söngstjórans. Með strengjaleik. Sálmur. Ljóð. (67:2) Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor, [Sela]2 (67:3) svo að þekkja megi veg þinn á jörðunni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða.3 (67:4) Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.4 (67:5) Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar, því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni. [Sela]5 (67:6) Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.6 (67:7) Jörðin hefir gefið ávöxt sinn, Guð, vor Guð, blessar oss.7 (67:8) Guð blessi oss, svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile