Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
Tired of seeing ads while studying? Now you can enjoy an "Ads Free" version of the site for as little as 10¢ a day and support a great cause!
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 70

1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Minningarljóð. (70:2) Guð, lát þér þóknast að frelsa mig, Drottinn, skunda mér til hjálpar.2 (70:3) Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða, er sitja um líf mitt, lát þá hverfa aftur með skömm, er óska mér ógæfu.3 (70:4) Lát þá hörfa undan sakir smánar sinnar, er hrópa háð og spé.4 (70:5) En allir þeir er leita þín, skulu gleðjast og fagna yfir þér, þeir er unna hjálpræði þínu, skulu sífellt segja: "Vegsamaður sé Guð!"5 (70:6) Ég er þjáður og snauður, hraða þér til mín, ó Guð. Þú ert fulltingi mitt og frelsari, dvel eigi, Drottinn!

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile