Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
Take your personal ministry to the Next Level by helping StudyLight build churches and supporting pastors in Uganda.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 75

1 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Asafs-sálmur. Ljóð. (75:2) Vér lofum þig, ó Guð, vér lofum þig, og þeir er ákalla nafn þitt, segja frá dásemdarverkum þínum.2 (75:3) "Þegar mér þykir tími til kominn, dæmi ég réttvíslega.3 (75:4) Þótt jörðin skjálfi með öllum þeim, er á henni búa, þá hefi ég samt fest stoðir. [Sela]4 (75:5) Ég segi við hina hrokafullu: Sýnið eigi hroka! og við hina óguðlegu: Hefjið eigi hornin!5 (75:6) Hefjið eigi hornin gegn himninum, mælið eigi drambyrði hnakkakerrtir!"

6 (75:7) Því að hvorki frá austri né vestri né frá eyðimörkinni kemur neinn, sem veitt geti uppreisn,7 (75:8) heldur er Guð sá sem dæmir, hann niðurlægir annan og upphefur hinn.8 (75:9) Því að bikar er í hendi Drottins með freyðandi víni, fullur af kryddi. Af því skenkir hann, já, dreggjar þess súpa og sötra allir óguðlegir menn á jörðu.9 (75:10) En ég vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði.10 (75:11) Öll horn óguðlegra verða af höggvin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile