Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 8

1 Til söngstjórans. Á gittít. Davíðssálmur. (8:2) Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina! Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn.2 (8:3) Af munni barna og brjóstmylkinga hefir þú gjört þér vígi til varnar gegn óvinum þínum, til þess að þagga niður í hefndargirni óvinarins.

3 (8:4) Þegar ég horfi á himininn, verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað,4 (8:5) hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans, og mannsins barn, að þú vitjir þess?5 (8:6) Þú lést hann verða litlu minni en Guð, með sæmd og heiðri krýndir þú hann.6 (8:7) Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum, allt lagðir þú að fótum hans:7 (8:8) sauðfénað allan og uxa, og auk þess dýr merkurinnar,8 (8:9) fugla loftsins og fiska hafsins, allt það er fer hafsins vegu.9 (8:10) Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile