Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
Tired of seeing ads while studying? Now you can enjoy an "Ads Free" version of the site for as little as 10¢ a day and support a great cause!
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 82

1 Asafs-sálmur. Guð stendur á guðaþingi, heldur dóm mitt á meðal guðanna:2 "Hversu lengi ætlið þér að dæma með rangsleitni og draga taum hinna óguðlegu? [Sela]3 Rekið réttar bágstaddra og föðurlausra, látið hinn þjáða og fátæka ná rétti sínum,4 bjargið bágstöddum og snauðum, frelsið þá af hendi óguðlegra."5 Þeir hafa eigi skyn né skilning, þeir ráfa í myrkri, allar undirstöður jarðarinnar riða.

6 Ég hefi sagt: "Þér eruð guðir og allir saman synir Hins hæsta,7 en sannlega skuluð þér deyja sem menn, falla sem einn af höfðingjunum."8 Rís upp, ó Guð, dæm þú jörðina, því að þú ert erfðahöfðingi yfir öllum þjóðum.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile