Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
StudyLight.org has pledged to help build churches in Uganda. Help us with that pledge and support pastors in the heart of Africa.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 97

1 Drottinn er konungur orðinn! jörðin fagni, eyjafjöldinn gleðjist.2 Ský og sorti eru umhverfis hann, réttlæti og réttvísi eru grundvöllur hásætis hans,3 eldur fer fyrir honum og bálast umhverfis spor hans.4 Leiftur hans lýsa um jarðríki, jörðin sér það og nötrar.5 Björgin bráðna sem vax fyrir Drottni, fyrir Drottni gjörvallrar jarðarinnar.6 Himnarnir kunngjöra réttlæti hans, og allar þjóðir sjá dýrð hans.7 Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar, þeir er stæra sig af falsguðunum. Allir guðir falla fram fyrir honum.

8 Síon heyrir það og gleðst, Júdadætur fagna sakir dóma þinna, Drottinn.9 Því að þú, Drottinn, ert Hinn hæsti yfir gjörvallri jörðunni, þú ert hátt hafinn yfir alla guði.10 Drottinn elskar þá er hata hið illa, hann verndar sálir dýrkenda sinna, frelsar þá af hendi óguðlegra.11 Ljós rennur upp réttlátum og gleði hjartahreinum.12 Gleðjist, þér réttlátir, yfir Drottni, vegsamið hans heilaga nafn.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile