Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
We are taking food to Ukrainians still living near the front lines. You can help by getting your church involved.
Click to donate today!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sakaría 3

1 Því næst lét hann mig sjá Jósúa æðsta prest, þar sem hann stóð frammi fyrir engli Drottins og Satan honum til hægri handar til þess að ákæra hann.2 En Drottinn mælti til Satans: "Drottinn ávíti þig, Satan! Drottinn, sem útvalið hefir Jerúsalem, ávíti þig! Er ekki þessi eins og brandur úr báli dreginn?"3 Jósúa var í óhreinum klæðum, þar er hann stóð frammi fyrir englinum.4 Þá tók engillinn til máls og mælti til þeirra, er stóðu frammi fyrir honum: "Færið hann úr hinum óhreinu klæðum!" Síðan sagði hann við hann: "Sjá, ég hefi burt numið misgjörð þína frá þér og læt nú færa þig í skrúðklæði."5 Enn fremur sagði hann: "Látið hreinan ennidúk um höfuð hans!" Þá létu þeir hreinan ennidúk um höfuð hans og færðu hann í klæðin, en engill Drottins stóð hjá.6 Og engill Drottins vitnaði fyrir Jósúa og sagði:7 "Svo segir Drottinn allsherjar: Ef þú gengur á mínum vegum og varðveitir boðorð mín, þá skalt þú og stjórna húsi mínu og gæta forgarða minna, og ég heimila þér að ganga meðal þessara þjóna minna."

8 Heyr, Jósúa æðsti prestur, þú og félagar þínir, sem sitja frammi fyrir þér, eru fyrirboðar þess, að ég læt þjón minn Kvist koma.9 Því sjá, steinninn, sem ég hefi lagt frammi fyrir Jósúa - sjö augu á einum steini - sjá, ég gref á hann letur hans - segir Drottinn allsherjar - og tek burt á einum degi misgjörð þessa lands.10 Á þeim degi - segir Drottinn allsherjar - munuð þér bjóða hver öðrum inn undir víntré og fíkjutré.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile