Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
Partner with StudyLight.org as God uses us to make a difference for those displaced by Russia's war on Ukraine.
Click to donate today!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 19

1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. (19:2) Himnarnir segja frá Guðs dýrð, og festingin kunngjörir verkin hans handa.2 (19:3) Hver dagurinn kennir öðrum, hver nóttin boðar annarri speki.3 (19:4) Engin ræða, engin orð, ekki heyrist raust þeirra.4 (19:5) Og þó fer hljómur þeirra um alla jörðina, og orð þeirra ná til endimarka heims. Þar reisti hann röðlinum tjald.5 (19:6) Hann er sem brúðguminn, er gengur út úr svefnhúsi sínu, hlakkar sem hetja til að renna skeið sitt.6 (19:7) Við takmörk himins rennur hann upp, og hringferð hans nær til enda himins, og ekkert dylst fyrir geislaglóð hans.

7 (19:8) Lögmál Drottins er lýtalaust, hressir sálina, vitnisburður Drottins er áreiðanlegur, gjörir hinn fávísa vitran.8 (19:9) Fyrirmæli Drottins eru rétt, gleðja hjartað. Boðorð Drottins eru skír, hýrga augun.9 (19:10) Ótti Drottins er hreinn, varir að eilífu. Ákvæði Drottins eru sannleikur, eru öll réttlát.10 (19:11) Þau eru dýrmætari heldur en gull, já, gnóttir af skíru gulli, og sætari en hunang, já, hunangsseimur.11 (19:12) Þjónn þinn varðveitir þau kostgæfilega, að halda þau hefir mikil laun í för með sér.12 (19:13) En hver verður var við yfirsjónirnar? Sýkna mig af leyndum brotum!13 (19:14) Og varðveit þjón þinn fyrir ofstopamönnum, lát þá eigi drottna yfir mér. Þá verð ég lýtalaus og sýknaður af miklu afbroti.14 (19:15) Ó að orðin af munni mínum yrðu þér þóknanleg og hugsanir hjarta míns kæmu fram fyrir auglit þitt, þú Drottinn, hellubjarg mitt og frelsari!

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile