Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 20

1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. (20:2) Drottinn bænheyri þig á degi neyðarinnar, nafn Jakobs Guðs bjargi þér.2 (20:3) Hann sendi þér hjálp frá helgidóminum, styðji þig frá Síon.3 (20:4) Hann minnist allra fórnargjafa þinna og taki brennifórn þína gilda. [Sela]4 (20:5) Hann veiti þér það er hjarta þitt þráir, og veiti framgang öllum áformum þínum.5 (20:6) Ó að vér mættum fagna yfir sigri þínum og veifa fánanum í nafni Guðs vors. Drottinn uppfylli allar óskir þínar.

6 (20:7) Nú veit ég, að Drottinn veitir hjálp sínum smurða, svarar honum frá sínum helga himni, í máttarverkum kemur fulltingi hægri handar hans fram.7 (20:8) Hinir stæra sig af vögnum sínum og stríðshestum, en vér af nafni Drottins, Guðs vors.8 (20:9) Þeir fá knésig og falla, en vér rísum og stöndum uppréttir.9 (20:10) Drottinn! Hjálpa konunginum og bænheyr oss, er vér hrópum.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile