Lectionary Calendar
Wednesday, May 15th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
Take your personal ministry to the Next Level by helping StudyLight build churches and supporting pastors in Uganda.
Click here to join the effort!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 21

1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. (21:2) Drottinn, yfir veldi þínu fagnar konungurinn, hve mjög kætist hann yfir hjálp þinni!2 (21:3) Þú hefir gefið honum það er hjarta hans þráði, um það sem varir hans báðu, neitaðir þú honum eigi. [Sela]3 (21:4) Því að þú kemur í móti honum með hamingjublessunum, setur gullna kórónu á höfuð honum.4 (21:5) Um líf bað hann þig, það veittir þú honum, fjöld lífdaga um aldur og ævi.5 (21:6) Mikil er sæmd hans fyrir þína hjálp, vegsemd og heiður veittir þú honum.6 (21:7) Já, þú hefir veitt honum blessun að eilífu, þú gleður hann með fögnuði fyrir augliti þínu.

7 (21:8) Því að konungurinn treystir Drottni, og vegna elsku Hins hæsta bifast hann eigi.8 (21:9) Hönd þín nær til allra óvina þinna, hægri hönd þín nær til allra hatursmanna þinna.9 (21:10) Þú gjörir þá sem glóandi ofn, er þú lítur á þá. Drottinn tortímir þeim í reiði sinni, og eldurinn eyðir þeim.10 (21:11) Ávöxtu þeirra afmáir þú af jörðunni og afkvæmi þeirra úr mannheimi,11 (21:12) því að þeir hafa stofnað ill ráð í gegn þér, búið fánýtar vélar.12 (21:13) Því að þú rekur þá á flótta, miðar á andlit þeirra með boga þínum.13 (21:14) Hef þig, Drottinn, í veldi þínu! Vér viljum syngja og kveða um máttarverk þín!

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile