Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
Partner with StudyLight.org as God uses us to make a difference for those displaced by Russia's war on Ukraine.
Click to donate today!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 47

1 Til söngstjórans. Kóraítasálmur. (47:2) Klappið saman lófum, allar þjóðir, fagnið fyrir Guði með gleðiópi.2 (47:3) Því að Drottinn, Hinn hæsti, er ógurlegur, voldugur konungur yfir gjörvallri jörðinni.3 (47:4) Hann leggur undir oss lýði og þjóðir fyrir fætur vora.4 (47:5) Hann útvaldi handa oss óðal vort, fremdarhnoss Jakobs, sem hann elskar. [Sela]

5 (47:6) Guð er upp stiginn með fagnaðarópi, með lúðurhljómi er Drottinn upp stiginn.6 (47:7) Syngið Guði, syngið, syngið konungi vorum, syngið!7 (47:8) Því að Guð er konungur yfir gjörvallri jörðinni, syngið Guði lofsöng!8 (47:9) Guð er orðinn konungur yfir þjóðunum, Guð er setstur í sitt heilaga hásæti.9 (47:10) Göfugmenni þjóðanna safnast saman ásamt lýð Abrahams Guðs. Því að Guðs eru skildir jarðarinnar, hann er mjög hátt upphafinn.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile