Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 48

1 Ljóð. Kóraítasálmur. (48:2) Mikill er Drottinn og mjög vegsamlegur í borg vors Guðs, á sínu helga fjalli.2 (48:3) Yndisleg rís hún, gleði alls landsins, Síonarhæð, yst í norðri, borg hins mikla konungs.3 (48:4) Guð hefir í höllum hennar kunngjört sig sem vígi.4 (48:5) Því sjá, konungarnir áttu með sér stefnu, héldu fram saman.5 (48:6) Óðara en þeir sáu, urðu þeir agndofa, skelfdust, flýðu.6 (48:7) Felmtur greip þá samstundis, angist sem jóðsjúka konu.7 (48:8) Með austanvindinum brýtur þú Tarsis-knörru.

8 (48:9) Eins og vér höfum heyrt, svo höfum vér séð í borg Drottins hersveitanna, í borg vors Guðs. Guð lætur hana standa að eilífu. [Sela]9 (48:10) Guð, vér ígrundum elsku þína inni í musteri þínu.10 (48:11) Eins og nafn þitt, Guð, svo hljómi lofgjörð þín til endimarka jarðar. Hægri hönd þín er full réttlætis.11 (48:12) Síonfjall gleðst, Júdadætur fagna vegna dóma þinna.12 (48:13) Kringið um Síon, gangið umhverfis hana, teljið turna hennar.13 (48:14) Hyggið að múrgirðing hennar, skoðið hallir hennar, til þess að þér getið sagt komandi kynslóð,14 (48:15) að slíkur sé Drottinn, Guð vor. Um aldur og ævi mun hann leiða oss.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile