Lectionary Calendar
Thursday, May 16th, 2024
the Seventh Week after Easter
Attention!
For 10¢ a day you can enjoy StudyLight.org ads
free while helping to build churches and support pastors in Uganda.
Click here to learn more!

Read the Bible

Heilögum Biblíunni

Sálmarnir 49

1 Fyrir kvenraddir. Til söngstjórans. Kóraítasálmur. (49:2) Heyrið þetta, allar þjóðir, hlustið á, allir heimsbúar,2 (49:3) bæði lágir og háir, jafnt ríkir sem fátækir!3 (49:4) Munnur minn talar speki, og ígrundun hjarta míns er hyggindi.4 (49:5) Ég hneigi eyra mitt að spakmæli, ræð gátu mína við gígjuhljóm.5 (49:6) Hví skyldi ég óttast á mæðudögunum, þá er hinir lævísu óvinir mínir umkringja mig með illsku,

6 (49:7) þeir sem reiða sig á auðæfi sín og stæra sig af sínu mikla ríkidæmi.7 (49:8) Enginn maður fær keypt bróður sinn lausan né greitt Guði lausnargjald fyrir hann.8 (49:9) Lausnargjaldið fyrir líf þeirra mundi verða of hátt, svo að hann yrði að hætta við það að fullu,9 (49:10) ætti hann að halda áfram að lifa ævinlega og líta ekki í gröfina.10 (49:11) Nei, hann sér, að vitrir menn deyja, að fífl og fáráðlingar farast hver með öðrum og láta öðrum eftir auðæfi sín.11 (49:12) Grafir verða heimkynni þeirra að eilífu, bústaðir þeirra frá kyni til kyns, jafnvel þótt þeir hafi kennt lendur við nafn sitt.12 (49:13) Maðurinn í allri sinni vegsemd stenst ekki, hann verður jafn skepnunum sem farast.13 (49:14) Svo fer þeim sem eru þóttafullir, og þeim sem fylgja þeim og hafa þóknun á tali þeirra. [Sela]14 (49:15) Þeir stíga niður til Heljar eins og sauðahjörð, dauðinn heldur þeim á beit, og hinir hreinskilnu drottna yfir þeim, þá er morgnar, og mynd þeirra eyðist, Hel verður bústaður þeirra.

15 (49:16) En mína sál mun Guð endurleysa, því að hann mun hrífa mig úr greipum Heljar. [Sela]16 (49:17) Óttast þú ekki, þegar einhver verður ríkur, þegar dýrð húss hans verður mikil,17 (49:18) því að hann tekur ekkert af því með sér, þegar hann deyr, auður hans fer ekki niður þangað á eftir honum.18 (49:19) Hann telur sig sælan meðan hann lifir: "Menn lofa þig, af því að þér farnast vel."19 (49:20) - Hann verður þó að fara til kynslóðar feðra sinna, sem aldrei að eilífu sjá ljósið.20 (49:21) Maðurinn í vegsemd, en hyggindalaus, verður jafn skepnunum sem farast.

 
adsfree-icon
Ads FreeProfile